Fréttir Greiningar
Útlit fyrir hraðan einkaneysluvöxt á 2. ársfjórðungi
16.07.2014 09:50

Að jafnaði óx kortavelta einstaklinga um 5,1% að raungildi á 2. ársfjórðungi 2014 frá sama tíma árið áður. Þar af jókst kortavelta innanlands um 3,4% en kortavelta erlendis um 19,0%. Aðrar vísbendingar um neyslu heimilanna eru á sama veg. Þannig var gríðarleg fjölgun á nýskráningum
bifreiða samkvæmt tölum frá Samgöngustofu, en bifreiðakaup eru stór hluti þeirrar einkaneyslu sem ekki er greidd með greiðslukortum. Einnig má nefna að Væntingavísitala Gallup (VVG) tók heldur betur við sér í júní sl., og fór upp fyrir 100 stigin og jafnframt í sitt hæsta gildi frá því í febrúar 2008. Sömu sögu má segja af nýjustu ársfjórðungsmælingu stórkaupavísitölu Gallup, sem birt var samhliða VVG í júnímánuði, sem náði einnig sínu hæsta gildi frá september 2008. Þýðir það m.ö.o. að íslenskir neytendur eru líklegri til þess að ráðast í stórkaup nú en þeir hafa verið frá hruni, þ.e. að festa kaup á húsnæði eða bifreið á næstu 6 mánuðum, eða ferðast til útlanda á næstu 12 mánuðum. Í þessu sambandi má nefna að tölur Ferðamálastofu hafa sýnt mikla fjölgun í utanlandsferðum, og í raun höfðu ekki jafn margir Íslendingar haldið erlendis í einum mánuði og í júní sl. síðan fyrir hrun.

Talsverður vöxtur einkaneyslu á árinu

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?