Sagan
Íslandsbanki er fyrirtæki með djúpar rætur í íslenskri atvinnusögu. Saga bankans spannar yfir 140 ár af þjónustu við fólkið í landinu og lykilatvinnuvegi þjóðarinnar. Á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs, og orku. Saga bankans er rakin á aðgengilegan hátt á tímalínunni hér fyrir neðan.
- 1875
Sparisjóður Álftaness
Sparisjóður Álftaness stofnaður árið 1875. Nafni hans er síðar breytt í Sparisjóðurinn í Hafnarfirði og sameinast hann Sparisjóði Hafnarfjarðar við stofnun hans 1902.
- 1904
Íslandsbanki
Gamli Íslandsbanki var opnaður 1904 á upphafsári heimastjórnarinnar og var fyrsti hlutafélagsbanki landsins. Hann lagði grunn að eflingu sjávarútvegs og varð lyftistöng fyrir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf.
- 1905
Fiskveiðasjóður Íslands
Fiskveiðasjóður Íslands var stofnaður árið 1905 til að efla fiskveiðar og útveg. Sjóðurinn lánaði fé til kaupa á skipum og veiðarfærum og studdi margvíslegar aðgerðir til að bæta fiskveiðarnar.
- 1905
Sparisjóður Arnarneshrepps
Sparisjóður Arnarneshrepps stofnaður en hann sameinast Sparisjóði Akureyrar (stofnuðum 1932) árið 1988 í Sparisjóð Akureyrar og Arnarneshrepps. Árið 1908 er sparisjóður Glæsibæjarhrepps stofnaður sem sameinast síðar Sparisjóði Arnarneshrepps og Akureyrar í Sparisjóð Norðlendinga.
- 1930
Útvegsbanki Íslands
Útvegsbanki Íslands hf var stofnaður í apríl 1930 og yfirtók eignir og skuldir gamla Íslandsbanka sem var lokað skömmu áður. Útvegsbankinn átti sérstaklega að styðja sjávarútveg, iðnað og verslun.
- 1935
Iðnlánasjóður
Í kreppunni milli 1930 og 1940 var Iðnlánasjóður stofnaður til að renna stoðum undir innlendan iðnað. Hann átti að lána til kaupa á vélum og stærri áhöldum en veitti einnig rekstrarlán.
- 1953
Iðnaðarbanki Íslands
Iðnaðarbanki Íslands hf var opnaður árið 1953 og hafði það hlutverk að styðja við verksmiðjuiðnað í handiðn í landinu.
- 1954
Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Kópavogs var stofnaður árið 1954.
- 1961
Sparisjóður vélstjóra
Sparisjóður vélstjóra var stofnaður árið 1961
- 1961
Verzlunarbanki Íslands
Vegur verslunar jókst eftir því sem leið á 20.öldina og var Verzlunarbanki Íslands stofnaður árið 1961 að frumkvæði íslenskra kaupmanna.
- 1971
Iðnþróunarsjóður Íslands
Árið 1970 ákváðu ríkisstjórnir Norðurlanda að stofna iðnþróunarsjóð fyrir Ísland til að auðvelda íslenskum iðnaði að aðlagast nýjum markaðsaðstæðum í kjölfar aðildar að EFTA.
- 1971
Alþýðubankinn
Íslenskt verkafólk eignaðist eigin banka árið 1971 þegar Alþýðubankinn hf. var opnaður. Markmið bankans var meðal annars að treysta atvinnuöryggi launafólks og efla atvinnuþróun.
- 1990
Íslandsbanki
Tímamót urðu í fjármálalífi Íslendinga í ársbyrjun 1990 þegar stærsti einkabanki landsins leit dagsins ljós. Íslandsbanki hf. varð til við sameiningu Alþýðubanka, Iðnaðarbanka, Útvegsbanka og Verzlunarbanka.
- 1997
Sparisjóður Norðlendinga
Sparisjóður Norðlendinga stofnaður við sameiningu Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps og Sparisjóðs Arnarneshrepps og Akureyrar.
- 1998
FBA
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. hóf starfsemi sína 1998. Hann tók við starfsemi Fiskveiðasjóðs, Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs. Markmiðið með stofnun FBA var að styrkja stoðir fjármálamarkaðarins og draga úr eignarhaldi ríkisins.
- 2000
Íslandsbanki - FBA
Árið 2000 sameinuðust Íslandsbanki og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins. Með samrunanum varð til öflugasta fyrirtækið á íslenskum fjármálamarkaði og leiðandi afl í viðskiptalífinu.
- 2001
Íslandsbanki
Nafnið Íslandsbanki tekið upp fyrir starfsemi bankans í heild árið 2001. Íslandsbanki er í fararbroddi við að innleiða nýjungar á íslenskum fjármálamarkaði. Íslandsbanki kaupir Sjóvá- Almennar tryggingar.
- 2004
Alþjoðlegur vöxtur
Íslandsbanki hefur sókn á erlenda markaði árið 2004 með kaupum á Kreditbanken í Noregi. Starfsemin erlendis vex á næstu árum m.a. í Noregi og Svíþjóð. Opnaðar skrifstofur eða útibú í London, Kaupmannahöfn og á fleiri stöðum.
- 2006
Glitnir
Íslandsbanki verður Glitnir árið 2006 og er bankinn með starfsemi víða um heim. t.d. á Norðurlöndum og í Bretlandi, Lúxemborg, Kína og Bandaríkjunum. Bankinn vex ört ásamt íslenska bankakerfinu í heild. Bankinn selur Sjóvá - Almennar.
- 2007
Byr sparisjóður
Sparisjóður Hafnarfjarðar og Sparisjóður vélstjóra sameinast árið 2006 og árið 2007 er nafninu breytt í Byr Sparisjóður. Árið 2007 sameinast Sparisjóður Kópavogs við Byr og ári síðar sameinast Sparisjóður Norðlendinga sömuleiðis við Byr.
- 2008
Nýr banki verður til
Nýr Glitnir stofnaður í nóvember 2008. Öll innlend starfsemi flyst úr gamla bankanum í þann nýja og bankinn er í fullri eign íslenska ríkisins. Birna Einarsdóttir verður bankastjóri nýja bankans.
- 2009
Íslandsbanki
Nýi Glitnir verður Íslandsbanki í febrúar 2009. Íslandsbanki er í fararbroddi við að bjóða úrlausnir til fyrirtækja og einstaklinga vegna fjárhagsvanda og er fyrsti íslenski bankinn til að ljúka samningum við kröfuhafa á eins árs afmæli sínu. Ný stjórn er skipuð reynslumiklum erlendum og íslenskum sérfræðingum og er Birna Einarsdóttir áfram bankastjóri.
- 2011
Íslandsbanki og Byr sameinast
Íslandsbanki kaupir Byr hf. og bankarnir sameinast undir merkjum Íslandsbanka í lok árs 2011. Sameinaður banki byggir annars vegar á ríkri sögu sparisjóða á Íslandi og hins vegar sögu gamla Íslandsbanka frá 1904.
- 2011
Kreditkort
Kreditkort var stofnað árið 1980 og var fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem bauð uppá kreditkort. Fyrirtækið varð sjálfstæður kortaútgefandi árið 2008, þegar fyrirrennara þess var skipt upp í Kreditkort og Borgun, og árið 2011 keypti Íslandsbanki Kreditkort.
- 2013
Íslandsbanki og Auður Capital
Auður Capital og Íslandsbanki komust að samkomulagi um að sameina séreignarsparnaðarvörur sínar, FramtíðarAuði og Lífeyrissparnað Íslandsbanka, undir heitinu Framtíðarauður VÍB. Sjóðfélagar í Framtíðarauði VÍB verða um 15.800 talsins eftir sameininguna.